Góðverk

Góðverk er aldrei gert

til einskis,

hversu lítið sem það er.

 

Góðan daginn gott fólk.

Þá er spekin komin á sinn stað.

Fyrirgefið að ég bloggaði ekki í gær,

en vegna anna tókst ekki að gefa sér tíma.

Þá er þessi agalega nótt liðin, sem betur fer.

Ég var með bakflæði í alla nótt.

Mikið er þetta slæmt, sérstaklega á nóttinni.

Skapið er ekki gott, svona í morgunsárið. ARG.

En dagurinn er fallegur, sólin skín og smá gárur.

Hún Gugga mín kom í fyrradag og verður fram að helgi.

Eigendur eru á leiðinni og þá verður nú stuð.

Gunni er búin að slá flötina og er hún alveg græn og falleg.

Jæja þá er þetta búið í bili.

Kveðja úr Reykjanesinu. 


Hamingjuósk

Velgengni þín og hamingja búa innra með þér.

Ytri aðstæður eru tilviljanir lífsins...

Einsettu þér að vera hamingjusöm.

Gleðin og þú verðið óvinnandi her

gegn erfiðleikunum.

 

Lifðu lífinu lifandi,

þú kemst hvort sem

ekki lifandi frá því.

 

Góðan daginn gott fólk.

Veðrið er hreint út sagt frábært.

Alveg ekta sólbaðsveður.

En, nei ekki út í sólbað.

Verð að fara að vinna, það bíður

margt og mikið sem ég verð að klára í dag.

Jóhanna mín kom aðeins við í gærkvöldi.

Sauðburður gengur ágætlega hjá henni.

Mig vantar góða konu til starfa í sumar,

sem nennir að elda til skiptis með okkur.

Og vinna öll önnur störf með okkur.

Núna eiga allir að leggja höfuðið í bleyti

og finna þessa konu eða mann.

Jæja þá er að haska sér og fara að vinna.

Bless í bili. 


Engill

Verndarengillinn þinn

er alltaf með þér.

Hann leiðir þig til

jákvæðni og bjartsýni

og lýsir upp veginn

framundan.

 

Svona hljóðar speki dagsins í dag.

Mikil speki ha.

Og góðan daginn allir.

Hérna er allt gott að frétta sólin skín

og það er logn. FRÁBÆRT.

Við vorum með gesti í gærkvöldi

sem voru þetta ekkert smá ánægð.

Jíbbí.

Kannski fer ég í smá hjólaferð í dag.

Það gleymdist að athuga hvaða mynd

væri best að sýna í kvöld.

En við finnum eitthvað gott ef þeir

hjá KNH koma.

Jæja þá er þetta orðið gott í bili.

Verð að fara að vinna.

Bless í bili. 


Yndislegt

Vingjarnleg orð geta verið

einföld og auðsögð

en endurómur þeirra er

óendanlegur.

 

Góðan daginn á þessum líka flotta degi.

Við Gunni erum að klára barnaskólann

fyrir hóp af unglingum sem koma á eftir.

Það er mikið af pöntunum í gangi núna

þessa dagana.

Okkur vantar starfsfólk fljótlega.

Hjálp.

Bara grín eða þannig.

Jæja má ekki vera að því að sitja

og skrifa, verð að fara að vinna.

Skrifa fljótt aftur.

Bless í bili. 


Hjálpum hvort öðru

Þegar einhver leggur við hlustir,

réttir út hjálparhönd,

hvíslar hvatningarorðum,

eða reynir að skilja einmanna sál,

fara ótrúlegir hlutir að gerast.

 

Góðan daginn á þessum sunnudegi.

Klukkan er að verða fjögur og frúin ekki enn búin að blogga.

Jæja þá er hún farin af stað.

Gunni fór út um kl. 12 í gærkvöldi til að gá eftir tófunni.

En Sigga fór bara að sofa á sitt græna.

Magni kom um kl.01:30.

Gunni sá ekki neitt til tófunnar svo að ég veit ekki

hvað er næst í stöðunni.

Hann var að tala um að setja út æti og nálgast

hana þannig, ég veit ekki.

Í dag er algjört logn en smá úði.

Ég er búin að setja utan um allar sængurnar hérna heima

og allt tilbúið fyrir gesti (pabbi og Inga taki þetta til sín).

Mikið svakalega væri nú gaman að hitta hana Guggu mína

fljótt.  En ég þarf annars að tala við þig Gugga mín.

Hringi seinna.  Vonandi gengur vel hjá þér Gunna mín

og ég óska þér góðs bata.  Kysstu Dífu.

Jæja þá flaug andinn og ég sit eftir eins og tóm blaðra.

Kveðja frá Reykjanesinu. 

 

 


Bara berjast

Til að komast yfir ána

getum við ekki bara staðið

skjálfandi á bakkanum,

og hugsað um kuldann og

hættuna, heldur verðum við

að stökkva útí og krafla

okkur áfram eftir bestu getu.

 

Halló gott fólk.

Jæja þá er það komið á blað.

Við getum það sem við viljum

ef við bara ætlum okkur.

Það er svo sem ekkert nýtt að frétta frá okkur í Reykjanesi.

Fuglarnir eru enn að keppa um hver sé bestur.

Og allir eru þeir lang flottastir.

Hvítasunnuhelgin var alveg geggjuð.

Stebbi og Siffý komu og svo kom hún

Regína mín með tvo grísi með sér.

GEGGJAÐ.

Það var samt nóg að gera hjá okkur Gunna

þannig að við gátum ekki sinnt okkar

gestum nógu vel.

SORRÝ

Takk Guðrún mín elskuleg fyrir kveðjuna

í gestabókina og ekki síst takk Nótt Þórunn mín

og mikið hlakkar mig til að fá ykkur í heimsókn

í sumar.

Takk Bubbi minn fyrir þína kveðju og ég fer

að skrifa þér bréf og segi þér allt um mig og mína.

Annars allt í góðu.

Eða hvað, Guðbrandur er hættur og farinn.

Á maður þá að segja: far vel frans, eða bara eitthvað. PÚFF

Ekki meira í bili.

Kveðja frá Reykjanesinu. 


GESTIR..........

Alveg fullt af gestum.

Má ekki vera að því að blogga.

Kveðja. 


Lygi

Í baráttu lyginnar og sannleikans

vinnur lygin fyrstu orrustuna

en sannleikurinn þá síðustu.

 

Góðan daginn gott fólk.

Þá er það komið á blað, lygi eða sannleikur.

Ég þoli ekki lygi og ég þoli ekki hvernig

hlutirnir fóru.

Ég verð aldrei sátt.  Og hana nú.

Best er bara að segja sannleikann

og að vera heiðarlegur.

Hérna er vitlaust veður og skafrenningur á

heiðinni. Sumar hvað ha. Bara bull.

Jæja hann Gunni er komin á fullt að vinna 

og ég verð að haska mér.

Kveðja frá Reykjanesinu. 


Ást

Enginn strengur eða kapall getur dregið

af þvílíku afli, eða bundið jafnrammlega,

og ást getur með einum þræði.

 

Jæja góðan daginn gott fólk.

Frá okkur í Reykjanesinu er bara allt gott að frétta.

Það var bakað mikið í gær og ég ætla að

baka mikið í dag líka.  Gunni ætlar að

fara að athuga með sláttuvélina og byrja

að slá flötina og fótboltavöllin.

Það er smá vindur í dag en það er bara í lagi.

Ég fer að fara út í barnaskóla að klára að

þrífa glugga og skúra svo.

Gugga mín, við þurfum bara að tala saman í síma.

Krían er ekki komin.  Jóhanna segir að hún komi 10 til 11 maí.

Jæja núna er ég farin að bulla og andinn löngu farin.

Kveðja úr Reykjanesinu. 


Verum góð við hvort annað.

 

Góðvild í orðum skapar traust.

Góðvild í hugsun skapar dýpt.

Góðvild í gjöfum skapar ást.

 

Hvað er kærleikur nr. 10?

Kærleikur er ljósið sem býr í hjarta þínu.

 

Góðan daginn elskurnar.

Er aðeins seinni á ferðinni en vanalega.

Það er ekki af því að ég svaf til hádegis.

Ó nei vöknuð fyrir allar aldir en þá fór rafmagnið

og þá var smá bið.

Gunni er að skipta um dælu niðri og ég hef

ekkert heitt vatn og ég nenni ekki að fara

út í læk eftir vatninu.

Ég ætla að halda áfram að hreinsa í

barnaskólanum og gera fínt þar.

Ég fór samt að baka og er í því á fullu.

Jú jú baka fyrir hvítasunnuna.

Það er búist við sennilega hátt í 50 gesti.

Stebbi og Siffý verða hérna um helgina og ætla

að leggja af stað á föstudagskvöld.

Í gærkvöldi fór ég á vespunni minn inn í

Svansvík að heimsækja fólkið þar.

Veðrið var svo gott og það var svo gaman

að fara út að hjóla.

Gerum meira af þessu.

Það voru ekki margir í bíó í gærkvöldi, þannig

að þeir voru bara í stofunni hjá okkur.

Kannski er þetta ekki að virka nógu vel.

Jæja við sjáum til.

Jæja þá er þetta orðið alveg nóg í bili.

Kveðja úr Reykjanesinu. 

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband